
Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur
*Hrabbý*
Ákvað að sýna smá lit og henda inn einni færslu .. enginn metnaður þó í mér, því þetta kemur ekki frá mér heldur Þórunni vinkonu:
Endilega hjálpið mér að kjósa Áslaugu Ósk Hinriks konu ársins hjá Létt 96.7 2008
hér er Hetjan hún Þuríður Arna....
Hér er linkurinn og endilega hakið í nafnið hennar... hún á það big time skilið skvísan... Hún er yndislegasta manneskja sem þið getið kynnst um ævina og er ég svo heppin að hafa fengið að kynnast henni.... lít svooo mikið upp til hennar og eins og ég segi YNDISLEGUST allra sem ég þekki.... vonandi hreppir hún hnossið....
http://lettbylgjan.is/?PageID=2433
Knús á þig elsku Áslaug mín, Þín vinkona Þórunn Eva
Vona að sem flestir kjósi - HRABBs
Nenni ekki að blogga þessa dagana .. er 1hvað svo ringluð
Ég ætlaði aðeins að tilkynna það að ég er búin að setja myndir inná myspaceið mitt, get ekki sett þær hérna inn .. 1hvað bilað, bölvað rusl
En það er allavega hellingur af myndum þar..
- frá afmælinu hennar ÖmmuBet
- jólunum
- gömlugellu hittingur .. Erla Begga og Hrabbs hittust og renndu niður nokkrum köldum
- áramótunum og 1hvað meir held ég
En ég get allavega sagt ykkur það að ég er búin að hafa það rosalega gott yfir jólin, búin að borða alltof mikið og sofa endalaust!
Þannig eiga jólin að vera
LATER
- búin með Aðferðafræðiprófið mitt !!!!!
- eintóm hamingja .. vona að það verði það líka þegar ég er búin að fá einkunina mína ![]()
- tvo verkefni sem bíða mín núna
- stór .. en ætla að reyna klára þau sem fyrst
- sit uppí skóla að bíða eftir Örnu
- erum að fara gera verkefni
- langar helst af öllu að klára það í dag
- þá get ég klárað hitt sem fyrst .. nenni ekki að hafa þetta hangandi yfir mér!
- vil fara komast í jólafrí
- AmmaBet á afmæli á mánudaginn næsta
- hún verður 95 ÁRA!!!!!![]()
- hún ætlar að halda hevííí partý á Skútunni
- ég ætla að vera í sæta kjólnum sem ég keypti úti í Köben, reyna vera mesta gellan á svæðinu ![]()
- OG keyti mér jólaskóna í fyrradag!!!!
- verð bara gellz í kjólnum og skónum ![]()
- síðustu dagar búnir að vera herteknir af lærdóm..
- fyrsti laugardagurinn minn núna á laugardaginn síðan ég veit ekki hvenær, sex árum eða 1hvað sem ég var ekki að vinna
- laugardagurin var samt sem áður enginn frídagur .. ég eyddi honum mest megnis með Helgu Lovísu og Birnu í hópverkefni, sem var bara fjör
- ég er búin að vera í skólanum síðan í morgun og sit hérna enn .. stelpurnar voru að fara, sem var orðið langþráð
- ég er að hangsa uppí skóla ennþá vegna þess að ég er að fara hitta hann pabbalabba (KiddaPabba)
- ekki búin að sjá hann síðan......................
- það verður nú 1hvað spennó .. hann er með kæró meðferðis í þessari Íslands heimsókn
- sjæse hvað það styttist í þetta skítapróf
- er ekki frá því að það sé farið að læðast að mér smá kvíði .. það er kannski bara vegna þess hvað ég á mörg ókláruð verkefni eftir!
- vona nú samt að þetta fari bara allt á besta veg .. vonum bara það besta en bý mig undir það versta
- samt gott að geta hugsað að það sé svona lítið eftir í skólanum, þá er nefnilega svo stutt í jólin
- og enn styttra í að ég útskrifist
.. en allavega .. læt þetta update nægja í bili .. ætla athuga hvort sá gamli sé kominn .. bleeeee

.. meira en nóg að gera í skólanum, mér finnst ég ekki eiga líf utan hans! En held að svo sé ekki
Það eru búin að vera tvö BYKOpartý .. bæði í tilefni af nýju búðinni í Kauptúni..
- Fyrra partýið var niðrá Fjörukrá .. fengum ágætis mat
..Ég Alda og Ásrún dressuðum okkur upp @ my place og röltum svo niður eftir með regnhlýfar og slæður á hausnum
Við tókum fullt af myndum sem eru bæði á síðunni minni og Öldu..


Það var hrika stuð hjá okkur .. einsog vanalega .. þar sem við stuðboltarnir komum saman

Krúttbomburnar sem standa á bak við riiiisabúðina í Kauptúni

- Seinna partýið var í timbursölunni góðu!! Hæstráðendur grilluðu gómsætt lambalæri ofan í lið og síðan var fjör langt fram eftir nóttu

Brynja Beibííí kom og kíkti á gamla góða liðið sitt...

Guðni Björn og Heiðar sungu einsog þeim einum er lagið .. Snillingar

Sumir voru hressari en aðrir .. Jón Gunnar fór snemma heim en Maggi og Ingvi sprelluðu og spiluðu...............

Atli greip í gítarinn og spilaði Fjöllin hafa vakað með strákunum .. veit ekki hvort það var betra en þegar Bubbi tók það með EGO

Strákarnir stóðu sig heldur betur vel .....

Misstum okkur aðeins með GULAhjálminn!!!!!

Svo lág leiðin niðrá Fjörukrá..

..Þar bauð Guðni Björn mér uppá BJÓR, mig langaði bara í lítinn bjór .. ég fékk lítinn PÍNUlítinn!!!!!
- Laugardagurinn var frekar BUSY .. var að vinna í nýju BYKO versluninni, það var ágætt .. þetta er alveg hrikalega stórt en ég held samt að þetta verði bara ágætt, samt ekkert einsog gamla góða verslunin.....
ég var að vinna frá 9 - 5 átti reyndar að vera til 6 en Víðir Atli var svoooo elskulegur að hleypa mér fyrr heim svo að ég gæti heimsótt Erlu mína
..hún var í stuttri heimsókn á klakanum, ég sat hjá henni í tvo tíma og við kjöftuðum og kjöstuðum! Sem er ekkert óeðlilegt þegar við hittumst
hehe
svo brunaði ég heim til að skola af mér skítinn og reyna að gera mig sætariiiii
heppnaðist bara nokkuð vel held ég
læt ykkur bara dæma um það híhíhíhí
svo var LOKSINS komið að innflutningpartýi Kjartans og Margrétar!!
Ragga, Biggi, Ásrún og Huld komu og sóttu mig og þurftu að bíða í næstum klukkutíma eftir mér...........
læt sko bíða eftir mér hahahahaha


Við vorum sko mega gellz
..og tókum eitt klósettflipp ![]()



Jón gerði líka góða hluti með því að koma með þennan stórkostlega hatt sem allir þurftu að prófa...



.. það voru tekin ófá dansporin














Helgin var mögnuð mögnuð mögnuð..
..ég var hinsvegar ekki viss um að ég myndi lifa sunnudaginn af vegna þynnku, en mér tókst það!
lýg því samt ekki að ég var ennþá þunn á mánudeginum..
ÉG GAT EKKI SETT MYNDIRNAR INNÁ BLOGGIÐ MITT .. ÞÆR KOMU ALLAR SKAKKAR OG ANSALEGA INN ÞANNIG ÉG HENNTI ÞEIM INNÁ MYSPACEIÐ MITT
until next..
Ég hef verið að mana mig uppí að setja eitt stykki blogg hérna inn, en hef verið annars hugar
Klikkað að gera í skólanum .. maður hefur valla tíma til þess að lúlla sér og svo er ég búin að vera með 1hverja skíta pest síðan fyrir helgi..
Maginn minn búinn að dansa í hringi og verið að gera mér lífið leitt .. en ég er að hressast núna, vona ég!!!!
Ég hef allavega ekki tíma í að vera svona tuska lengur..
En að öðru ..
Ég er ekkert búin að blogga síðan ég kom heim frá Köben, sem var ég man ekki einusinni hvenær
Ferðin var æðisleg..
.. við fórum í vettvangsheimsóknir, á fimmtudeginum og föstudeginum
- Skoðuðum, grunnskóla fyrir fötluð börn, leikskóla fyrir fötluð börn, sambýli fyrir fullorðna og verndaðan vinnustað
- Þetta var allt æðislega flott að skoða og bera saman við aðstæður heima
- Æðislegt fólk sem tók á móti okkur

..rúntuðum með strætó góða

borðuðum fullt af góðum mat..

..borðuðum á Reef n Beef á laugardeginum, ég smakkaði kengúru og krókódíl - sem var svolítið skrítið en skemmtilegt

- fórum svo og borðuðum á uppáhalds staðnum hennar Jóhönnu bekkjayss!
- Topkapi
- hann var æði
- varð alveg pakksödd
- rauðvínsglöð

..maturinn var ekkert smá girnó, þriggja rétta OG

STÓR kók var sko STÓR kók
.......... fórum líka í Ameising Reis á sunnudeginum .. sem var rosa stuð, nema kannski að mitt lið vann ekki
- fyndið, svo sagði Guðrún Erna mér að þetta er frændi hennar sem sér um þetta

kíktum á nokkra pöbba & fengum okkur nokkra öllara...!
Ég hitti Helgu frænku, og engilinn hennar hann Karl Jóhann
- skelltum okkur á kaffihús og fórum svo heim til hennar í æðislegu íbúðina þeirra á Amager
- alveg ný og ekkert smá rúmgóð og björt

- HÁPUNKTUR FERÐARINNAR-

- HITTI UPPÁHALDS SYKURPÚÐANA MÍNA Í KÖBEN -
það var bara æðislegt .. ég var samt ekki nógu virk með myndavélina
- Ég hitti Guðrúnu Matta og Árna á mánudeginum og skelltum okkur á 1hvern voða fínan og kósí pöbb þar sem bjórinn er víst á besta verði segja Köbenbúarni .. ekki að ég hafi vit á því, Árni var svo æðislegur að bjóða mér uppá bjölla .. TAKK TAKK

- Hitti þau svo aftur á þriðjudeginum, ég tók strætó frá Helgu og til Guðrúnar, næstum alveg ein
- Við fórum í búð og röltum svo heim til Guðrúnar og Matta í kósí íbúðina þeirra sem þau eru búin að koma sér svooo vel fyrir í .. Guðrún eldaði heimsins bestu pizzu
- Árni var svo elskulegur að fylgja mér í strætó þannig ég yrði ekki ein í myrkrinu í Köben
- ÉG GET EKKI SAGT AÐ ÞAÐ HAFI VERIÐ GLEÐISTUND ÞEGAR ÉG ÞURFTI AÐ DRÖSLAST ÚT Á FLUGVÖLL MEÐ ALLAN HELV.. FARANGURINN!
- Ég er sko farin að safna fyrir næstu Köbenferð, get eiginlega ekki beðið, langar bara strax!!!
- Ég gerði mér eiginlega ekki grein fyrir því hvað ég saknaði Guðrúnar og Matta fyrr en eftir þessa ferð....
- En það er bara gott að sakna 1hvers ..
-----> Annars er það að frétta að ég er að fara taka mig á MAJOR líkamlega og andlega .. nenni ekki að vera svona lengur, alltaf með mígreni og þreytt og í stressi og 1hvað rögl!!
- Ég þarf sem sagt að sparka í rassgatið á mér og rumpa öllum verkefnum og lærdóm af
- Múttatútta tilkynnti mér það í gær að það væri búið að borga staðfestingagjald á 1hvað átaksnámskeið í Hress sem byrjar eftir næstu helgi!
- Ingibjörg á heiðurinn á þessu framtaki, þar sem hana langði að fara og við erum svona svipaðar týpur og þurfum alltaf að fá spark í rassinn og getum þá sparkað einsog við viljum í hvora aðra
- Ég þarf að taka mig ansi mikið á í andlitinu til þess að standast þetta því námskeiðið byrjar KLUKKAN 6 Á MORGNANNA .. og þeir sem þekkja mig ágætlega, vita að þetta er ekki tíminn minn
- En þetta er markmið
- Ég ætla að standast það
- Hætta vera löt og virkja mig
- JÁ JÓLIN .. ER ALVEG FARIN AÐ HLAKKA TIL ÞEIRRA.....
.....en það er kannski ekki tímabært eða hvað
Helgin sem leið var góð

Hulda var afmælisbarn

við vorum þrjár góðar saman

ásamt þessum
-Bjarni og Jón Þórarinn-
------------------------------------------------------------------------------------------
en vona að næsta helgi verði jafnvel ennþá skemmtilegri
Þá verður Arna (bekkjasyss/roommate) afmælisbarn

(tökum nýja mynd úti, þessi farin að rykfalla smá af elli)
------------------------------------------------------------------------------------------
LATER
------------------------------------------------------------------------------------------
OG já ef þið viljið lykilorðið í síðustu færslu - verðið þið að væla það út úr Ásrúnu!!!!
Ebbi ljósmyndafyrirsæta kvöldins..













..það er hellingur af myndum í albúminu af næstum því eins sætu fólki..
OG
líka inná síðunni hennar Írisar, það er linkur HÉR
ef 1hver vill skoða
LATER